Fábær dagur.

Þetta er búinn að vera fábær dagur. Ruslaðist framúr bælinu hæfilega snemma og fór að æfa mig fyrir próf í tölvuteikningu. En þar sem veðurblíðan barði á gluggann var ekki annað hægt en að fara út í bílskúr, sækja Intruderinn og fara út að hjóla. Kom við hjá Heiðari og Hlyn, þeim andskotans samsærisfélögum og tjáði þeim að þeir væru aumingjar ef þeir kæmu ekki út að hjóla. Það verður nú að segjast að klæðnaðurinn á Heiðari var vægast satt undarlegur enda þegar svona smávaxnir menn fara í stuttbuxur þá er ekkert sem passar nema G-strengur. Í þetta var kappinn klæddur ásamt stígvélum og var varla að hann næði uppúr þeim.

Hlynur? Hlynur? Auðvitað var hann að reyna að bera fúavörn á húsið hjá sér í 17°hita og skildi ekkert í því út af hverju pensillinn var alltaf orðinn þurr og grjót harður þegar hann bar hann að viðnum nýdregnum upp úr fötunni.

Við vissum að nokkrir norðanmenn væru á leið austur á hjólum svo við ákváðum að reyna að hitta þá sem og við gerðum. Einhver hjól komu neðan af fjörðum líka. Svo var ekið á Seyðisfjörð og sötrað þar kaffi og étið vínarbrauð. Þetta var ansi skemmtilegur hópur og vona ég að eitthvað svipað eigi eftir að gerast oft í framtíðinni.

Læt þetta nægja í bili.

Vargur. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiðar Víkingur Sölvason

Sæll Drullustampur !!!! Hvernig er það með þig. Er þetta övund eða ertu bara svona lítill karl að þú þorir ekki að fara út í búð og kaupa þér G sterng ????? Ég get nú aðstoðað þig í því , þetta er svipað hjá þér eins og manninum sem þorði ekki í apotekið að kaupa smokka og svo loks þegar hann lét til skarar skríða og æddi inn í apotekið , þá ruddi hann út úr sér við afgreiðslukonuna ÉG ÆTLA AÐ FÁ 100 SMOKKA !!!!!!!!!!!!!!! Þannig að að það er sennilega hentugra fyrir þig og budduna hjá þér að taka mig með til að kaupa G streng fyrir þig ,,,bara svo þú lendir ekki í þessu sama máli.  En til að klára söguna um manninn og apotekið þá kom í ljós seinna að hann var ófrjór og þurfti því ekki á öllum þessum smokkum að halda .. SAGAN ER SÖNN

Takk fyrir að fá að bulla hér í þér drullu stampurinn minn nei nei  ég meina FLATFÓTUR !!!!!!!!!!!

Kv.þinn vinur HVS #5

Heiðar Víkingur Sölvason, 12.5.2008 kl. 21:51

2 Smámynd: Ingvar Þorleifur Hrólfsson

Það er alldeilis opið á þér rassgatið núna, rífur bara kjaft. Ef stærðin á þér væri í réttu hlutfalli við kjaftinn á þér þá værir þú risavaxinn.

Þinn vinur Vargur 

Ingvar Þorleifur Hrólfsson, 16.5.2008 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingvar Þorleifur Hrólfsson

Höfundur

Ingvar Þorleifur Hrólfsson
Ingvar Þorleifur Hrólfsson
Ingvar heiti ég og er sagt á mínu heimili að ég sé með farartækjadellu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Picture 429
  • PB170003
  • PB170005
  • 07.05.07.001
  • 03.05.05.003

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband